Um okkurAbout us

Lítið teymi með langa reynslu.A small crew with long experience.

AVL Production er íslenskt tækni- og framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í tæknilausnum fyrir viðburði, viðburðastaði og beinar útsendingar. Við sjáum um hljóð, lýsingu, mynd, streymi og útsendingar, ásamt tæknilegri verkefnastjórnun og mönnun viðburða.AVL Production is an Icelandic technology and production company specialising in technical solutions for events, venues and live broadcasts. We handle audio, lighting, video, streaming and broadcast, along with technical project management and event crewing.

Okkar sagaOur story

01

Hugmynd sem varð að veruleikaAn idea that became reality

AVL Production á rætur að rekja til samstarfs Haralds og Ivans, sem kynntust í störfum sínum við tækniframleiðslu og beinar útsendingar.AVL Production grew out of the partnership of Haraldur and Ivan, who met through their work in technical production and live broadcasting.

Í gegnum samstarfið þróuðu þeir sameiginlega sýn á tækifærin á íslenskum markaði: að þróa þjónustuna áfram, nýta betur reynsluna og þekkinguna sem þeir höfðu byggt upp og skapa nýja nálgun á samskipti og samstarf við viðskiptavini.Working together, they developed a shared view of the opportunities on the Icelandic market: to take the service further, make better use of the experience and knowledge they had built up, and create a new approach to communication and collaboration with clients.

Þegar áherslur fyrri vinnuveitanda færðust í aðra átt varð sú sýn að veruleika. Fyrirtækið var ekki stofnað eingöngu til að bjóða upp á tæknibúnað og mannafla, heldur til að byggja upp þjónustu sem þeir höfðu sjálfir lengi séð þörf fyrir.When their previous employer's priorities shifted elsewhere, that vision became reality. The company was not founded simply to supply equipment and crew, but to build the kind of service they had long seen a need for.

02

Frá hugmynd til framkvæmdaFrom idea to execution

Fyrirtækið var stofnað í júlí 2026 og fór fljótt af stað. Á fyrstu mánuðunum tókum við að okkur fjölbreytt verkefni, allt frá beinum útsendingum á íþróttaviðburðum hér á landi til alþjóðlegra útsendinga.The company was founded in July 2026 and got off to a quick start. In the first months we took on a wide range of projects, from live broadcasts of sporting events in Iceland to international broadcasts.

Meðal fyrstu verkefna okkar voru útsendingar frá Lengjudeildinni og CEV-blakmóti á Íslandi sem streymt var um alla Evrópu. Síðan bættust við Gatorade-bikarinn, úrslitaleikur Lengjudeildarinnar og tæknileg þjónusta við Glacier MMA Fight Night.Among our first projects were broadcasts of Lengjudeildin matches and a CEV volleyball tournament in Iceland streamed across Europe. The Gatorade Cup, the Lengjudeildin final and technical services for Glacier MMA Fight Night followed.

Fyrir Livey önnumst við heildarframkvæmd fjölmyndavélaútsendinga frá upphafi til enda: undirbúning, uppsetningu og frágang búnaðar, mönnun myndavéla, tæknilega stjórnun og útsendinguna sjálfa, meðal annars frá Olísdeildinni í handbolta og EHF-keppnum. Verkefni þar sem nákvæmni, samhæfing og áreiðanleiki skipta sköpum.For Livey we deliver complete multi-camera broadcast productions from start to finish: preparation, rigging and de-rigging of equipment, camera crews, technical direction and the broadcast itself, including matches from Olísdeildin handball and EHF competitions. Projects where precision, coordination and reliability make all the difference.

03

Okkar framtíðarsýnOur vision

Við viljum byggja upp fyrirtæki sem getur tekið að sér fjölbreytt og umfangsmikil tækniverkefni án þess að tapa þeim persónulegu tengslum og sveigjanleika sem einkenna minni fyrirtæki.We want to build a company that can take on varied and large-scale technical projects without losing the personal relationships and flexibility of a smaller company.

Góð tækniþjónusta felst ekki aðeins í því að allt virki þegar viðburðurinn hefst. Hún byrjar mun fyrr, með góðum undirbúningi, skýrum samskiptum og skilningi á því sem viðskiptavinurinn vill ná fram.Good technical service is not just about everything working when the event starts. It begins much earlier, with thorough preparation, clear communication and an understanding of what the client wants to achieve.

Markmiðið er að vera traustur samstarfsaðili á íslenskum markaði, þar sem gæði, ábyrgð gagnvart viðskiptavinum og viljinn til að gera stöðugt betur eru undirstaða starfseminnar.The goal is to be a trusted partner on the Icelandic market, with quality, accountability to clients and the will to keep improving as the foundation of everything we do.

Þetta er aðeins byrjunin.This is only the beginning.

Allir starfsmenn hafa aðgang að team@avl.is. Sumir eru líka með persónulegt netfang.Every team member has access to team@avl.is. Some also have a personal email.

Haraldur Á. Sig

Verkefnastjóri og útsendingastjóriProject and broadcast director

Byrjaði sem myndavélamaður, vann sig upp í framleiðanda og tók svo við sem verkefnastjóri.Started out as a camera operator, worked up to producer and then on to project manager.

Ivan

Tæknistjóri, ljósahönnuður og útsendingartæknimaðurTechnical director, lighting designer and video broadcast engineer

AV-verkfræðingur með 14 ára reynslu af lifandi viðburðum.AV engineer with 14 years of experience in live events.

Slava

Hljóðmaður og rafeindavirkiAudio engineer and electronics engineer

FOH, monitor, upptökur og útsendingar. Tónlistarmaður og rafvirkjameistari með 18 ára reynslu af lifandi hljóði.FOH, monitors, recording and broadcast. Musician and master electrician with 18 years of live sound experience.

Ingvar

Aðstoðarverkfræðingur í námiAssistant engineer in training

Ungur tæknimaður með góða reynslu úr bransanum. Lærir verkfræðistörfin undir handleiðslu Ivans og er hans hægri hönd.A young technician with solid experience in the industry. Learning the engineering side under Ivan, as his second.

Þjónusta sem byggist á fólkiService built on people

Sterkustu viðskiptasamböndin byggjast á trausti, góðum samskiptum og sameiginlegum skilningi. Við viljum vera samstarfsaðili sem þekkir starfsemi þína og hefur raunverulegan áhuga á að verkefnin gangi vel, ekki bara fyrirtæki sem útvegar búnað og tæknimenn.The strongest working relationships are built on trust, good communication and shared understanding. We want to be a partner who knows your operation and has a real interest in your projects going well, not just a company that supplies equipment and technicians.

Einn tengiliður, skýr ábyrgðOne contact, clear responsibility

Hver samstarfsaðili hefur sinn eigin tengilið innan AVL sem heldur utan um samskipti, skipulagningu, tæknimenn og búnað, og fær stuðning frá öðrum sérfræðingum okkar þegar umfangið kallar á það. Þú veist alltaf hvert þú átt að leita.Each partner has a dedicated contact at AVL who handles communication, planning, crew and equipment, backed by our other specialists when the scope calls for it. You always know who to call.

Eitt teymiOne crew

Hljóð, mynd, ljós og streymi frá sama aðila, svo ekkert dettur á milli.Audio, video, lighting and streaming from one team, so nothing falls between.

Við hlustum, lærum og bætum okkurWe listen, learn and improve

Verkefni er ekki lokið þegar síðasti tæknimaðurinn fer. Við förum reglulega yfir framkvæmd, samskipti og upplifun viðskiptavina, og ábendingar eru vel þegnar. Traust byggist ekki á því að lofa að ekkert fari úrskeiðis, heldur á því hvernig tekið er á því.A project is not finished when the last technician leaves. We regularly review delivery, communication and the client's experience, and feedback is welcome. Trust is not built on promising that nothing will go wrong, but on how problems are handled when they do.

Samstarf til lengri tímaPartnership for the long run

Við viljum samstarf sem þróast með viðskiptavinum okkar, svo þeir geti einbeitt sér að sínum viðburðum vitandi að tæknilegi þátturinn sé í góðum höndum.We want partnerships that grow with our clients, so they can focus on their events knowing the technical side is in good hands.

Vertu meðJoin us

Við leitum alltaf að fleiri verktökum.We are always looking for more contractors.

Verkefnin okkar eru ólík og stækka stöðugt. Við viljum kynnast áreiðanlegu fagfólki á öllum sviðum, hvort sem þú vilt taka stöku vaktir eða vinna með okkur að staðaldri.Our projects are varied and keep growing. We want to meet reliable professionals in every field, whether you want the odd shift or a regular place in the crew.

Sendu okkur línuDrop us a line
  • Hljóðmenn (FOH og monitor)Audio engineers (FOH and monitors)
  • Ljósatæknimenn og ljósahönnuðirLighting technicians and designers
  • MyndavélafólkCamera operators
  • Myndmixerar og útsendingastjórarVision mixers and broadcast directors
  • Streymis- og netsérfræðingarStreaming and network engineers
  • GrafíkstjórarGraphics operators
  • Sviðs- og riggtæknimennStage and rigging crew
  • FramleiðslustjórarProduction managers
  • Upptökur og klippingRecording and editing
FyrirtækiCompanyAVL Production ehf.
KennitalaCompany ID410726-0170

Segðu okkur frá næsta verkefni.Tell us about your next project.

Við svörum fljótt og finnum lausn sem hentar viðburðinum.We reply quickly and find a setup that fits your event.

team@avl.is Hafa sambandContact us